Leita í fréttum mbl.is

Mismunur á þenslusvæðum og ekki þenslusvæðum

Í þessari frétt endurspeglast ástandið á milli þeirra sveitarfélaga þar sem þenslan og fólksfjölgun hefur verið hvað mest síðastliðin 10-15 ár. Sveitarfélögin hafa verið að selja lóðir á ótrúlega háu verði meðan önnur sveitarfélög sem hafa ekki búið við fólksfjölgun hafa verið að borga með lóðum ef fólk fengist til að byggja.

Ég hitti bæjarfulltrúa og alþingismann úr Kópavogi á fundi síðastliðin vetur og ræddum við þessa stöðu, þ.e.a.s. lóðarverð og lánsmöguleika fólks frá þessum mismunandi landssvæðum. Hann var ekki að trúa mér þegar ég sagði honum frá því að við í Fjallabyggð borguðum með lóðum ef fólk vildi byggja meðan þeir t.d. í Kópavogi rukkuðu um jafnvel tugi milljóna fyrir sambærilega stærð af lóð.

Og svo tók nú steininn úr þegar ég sagði honum frá því að bankarnir sálugu Landsbankinn og Glitnir vildu helst ekki lána til fasteignakaupa úti á landi. En ég hafði af því fregnir að bankarnir vildu ekki lána á staði eins og Fjallabyggð og setti mig í samband við áðurnefnda banka og fékk það staðfest að áhugi væri enginn til að lána á slíka staði þar sem fólksfækkun væri.

Svona að lokum má geta þess að erfitt er að fá íbúð keypta á Siglufirði í dag og smærri einbýlishús liggja ekki á lausu, það hefur gerst að mikið að fólki hefur keypt sér eign á staðnum sem sína aðra fasteign og á hér athvarf sem það notar svo allt árið.

Ég tek undir með Halldóri formanni og Gunnari bæjarstjóra að reglur þær sem gilda eru barn síns tíma.

Og svona að lokum hvað hefur verið að bakvið það fasteignaverð sem hefur verið á höfuðborgarsvæðinu? Getur verið að bankarnir sálugu hafi keyrt upp fasteignaverðið, ljóst er að verktakar hafa farið hamförum og byggt langt umfram eftirspurn það er staðfest í dag?

 

 


mbl.is Lögunum verður að breyta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sælir.  Ég tek undir blogg Kristins Sigurjónssonar að meginstofni til. Ingibjörg Sólrún kom þessu okurkerfi lóða á með því að byrja borgarstjóraferil sinn á því að slá af 12-14.000 manna byggð sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins var með í skipulagsvinnu á Geldinganesi og var langt komin. Í framhaldi þessa gerræðis Ingibjargar Sólrúnar varð verulegur lóðaskortur á höfuðborgarsvæðinu og ISG fór að bjóða upp fáeinar lóðir sem fáanlegar voru með þéttingar gamallar byggðar svo sem í Seljahverfi. Þarna fékkst fáránlega hátt verð. Þetta nýtti auðvitað dr. Gunnar Ingi sér ásamt með öðrum bæjarstjórum og snarhækkaði verð lóða hjá sér snimmhendis. Kópavogur naut góðs af framsýni Sjálfstæðismanna sem á undan dr. Gunnari voru sem höfðu undirbúið jarðveginn fyrir stækkun bæjarins m.a. með lagningu hins feykidýra, þá umdeilda, Kópavogsræsis, sem að samanlögðu varð til þess að dr. Gunnar gat með miklum hraða stóraukið framboð lóða - sem aftur vegna okurlóðaverðs varð bæjarsjóði stórkostleg tekjulind. Í þá sjóði gæti hagkvæmt rekinn bæjarsjóður núna sótt fé til að mæta innlögðum lóðum. Áður fyrr var lóðaverð metið með hliðsjón af kostnaði bæjarins við að leggja vegi og lagnir. N'una er það verð fundið og margfaldað með - tja kannski fjórum ? SIðlaust ?

Blogg Kristins :

Kristinn Sigurjónsson18.10.2008 | 13:05

Þjófur tapar þýfi

Sveitastjórnir kvarta vegna skilagjalda á lóðum.
Sveitarstjórnir höfuðborgarinnar ákváðu að stórhækka lóðaverð, langt langt umfram gatnagerðagjöld. Þetta var og er ekkert annað en skattlagning sem á sér enga lagastoð, og ég kalla það þjófnað. Lóðaverðið fór í það að verða 4-falt gatnagerðagjöldin. Ef sveitastjórnirnar þurfa ekki að skila 1/4 af lóðunum, þá halda þeir eftir útlögðum kostnaði vegna gerð hverfanna. En þær væla eins og stunginn grís fyrir að þurfa að skila því sem þeir með „ólögmætum“ hætti höfðu af saklausum byggjendum sem flönuðu út í vitleysuna vegna gylliboða bankanna.

Fyrir mér er þetta eins og að hafa samúð með þjófi sem þarf að skila hluta þýfisins. 

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 19.10.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 94425

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband