Leita í fréttum mbl.is

Niðurrif

Þá er komið að því sem að ég og margir aðrir óttuðumst þegar Síldarvinnslan keypti SR-Mjöl að verksmiðjunni á Siglufirði yrði lokað og tæki og tól seld til niðurrifs.

Þetta er mjög mikið áfall bæði fjárhagslegt og tilfinningalegt fyrir Siglufjörð og bæjarbúa. Þær eru ófáar krónurnar sem bræðslan skaffaði í bæinn tekjur hafnarinnar voru ævintýralegar þegar mest gafst og tekjur starfsmanna góðar.

Ég var svo heppinn að starfa hjá Síldarverksmiðjum ríkisins og síðar SR-Mjöl þegar bræðsla stóð yfir, þetta var oft mikil vinna langar vaktir en tekjurnar góðar og samstarfmennirnir skemmtilegir.Ég ætla ekki að rifja upp sögu ”bræðslu” í Siglufirði við sem ólumst upp á staðnum munum eftir peningalyktinni reykinn lagði ekki ósjaldan yfir skólalóðina og inní kennslustofur og mörgum varð óglatt en þetta var vinna og það þýddi tekjur fyrir allt og alla enda bara talað um ,,peningalykt’’ 

Það sem mér sárnar einna merst er að það segir enginn neitt forsvarsmenn sveitarfélagsins sjá ekki sóma sinn í að bóka þó ekki væri nema að þeir ”hörmuðu” í hverslags aðstæður mál væru komin. Fólkið sem sem talaði um atvinnu uppbyggingu og fjölskyldurnar í kosninga  örmyndinni sem var sl vor. Í dag er raunin sú að atvinnu og markaðsfulltrúinn sem var í 50% starfi er hættur og enginn tekið hans starf. Það kom kannski líka berlega í ljós í október þegar göngin voru vígð. Fjallabyggð varð að aðhlátursefni, kaldvatnið tekið af í Siglufirði á sunnudeginum og helgina eftir komu gestir víða að lokuðum dyrum.

Það er starfandi atvinnu og ferðamálanefnd sem hefur haldið heila fjóra fundi frá því í júní 2010 ekki hefur hún heldur ályktað um þetta. Er ekki nauðsynlegt að sveitarfélagið hafi starfsmann sem sé tengiliður milli atvinnulífsins og stjórnsýslunnar? Ferðamennska er líka atvinna, það er mikil gróska og uppbygging í ferðamennsku í Fjallabyggð og er það vel.  

Ég stóð fyrir undirskriftasöfnun 2007 þar sem skorða var á Síldarvinnsluna að hefja aftur vinnslu í verksmiðjunni sem var ein sú fullkomnasta og afkasta mesta á landinu og skrifuðu 230 nafn sitt á listann sem var afhentur verksmiðjustjóra sem þá var áður hafði bæjarstjórn falið bæjarstjóra að skrifa framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar og óska eftir upplýsingum um áframhaldandi starfsemi þeirra á staðnum.

 Nú er það staðreynd að verksmiðjan er komin í eigu Spánverja og stendur yfir niðurrif á tólum og tækjum sem verða svo sett upp annarstaðar. Tími gamla bræðsluveldisins er endanlega liðinn. Eftir stendur í Siglufirði veglegt safn um sögu tól og tæki, við lifum orðið á forni frægð svona rétt eins og knattspyrnufélagið Liverpool.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 94399

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband