10.10.2008 | 16:52
Tilkynning frá Fjallabyggð
Í ljósi þess ástands sem nú ríkir í landinu þá er nauðsynlegt að fólk haldi ró sinni og missi sig ekki í sögusögnum og tilbúningi, vegna þeirrar umræðu sem fór af stað í okkar rólega samfélagi þá telur bæjarstjórn sér skylt að upplýsa íbúana um þau úrræði sem sveitarfélagið hefur uppá að bjóða og eins að skýra stöðu sveitarfélagsins.
Tekið af vef Fjallabyggðar
Ágætu íbúar Fjallabyggðar Í tilefni frétta af slæmri stöðu íslenskra banka og áhrifa þess á gengi íslensku krónunnar og íslenskt efnahagslíf, vill bæjarstjórn koma eftirfarandi á framfæri. Fjallabyggð er vel statt sveitarfélag. Þær skuldir sem Fjallabyggð á eru að langstærstum hluta hjá Lánsjóði Íslenskra sveitarfélaga og Íbúðalánsjóði á hagstæðum kjörum. Fjallabyggð er með óveruleg lán í erlendri minnt og Fjallbyggð á ekki eignir í hlutafélögum á markaði, né í erlendri starfsemi.
Eftir sölu Hitaveitu Ólafsfjarðar voru allar óhagstæðar skuldir greiddar upp. Hluti af söluandvirði hitaveitunnar var hins vegar lagður inn á reikning í Sparisjóði Ólafsfjarðar á góðum kjörum, þar sem það var hagstæðara á þeim tíma en að greiða niður skuldir. Það var þó ávallt stefna Fjallabyggðar að nýta þessa peninga til greiðslu lána ef dæmið snerist við, líkt og nú er orðið.
Bæjarstjórn finnst rétt að árétta að sveitarfélagið stendur vel og er mjög vel í stakk búið til að aðstoða íbúa sína, verði þeir fyrir áföllum.
Félagsmálasvið Fjallabyggðar hefur þegar fundað með aðilum innan heilbrigðisgeirans, grunnskólans, Rauðakrossins, Hjálparstofnunar kirkjunnar og Sparisjóðanna til að leggja á ráðin um hvernig mæta megi hugsanlegri þörf fyrir aðstoð meðal bæjarbúa. Þörf fyrir aðstoð getur birst í mörgum myndum, svo sem þörf á fjárhagslegri aðstoð félagslegri aðstoð, andlegri aðstoð eða ráðgjöf vegna fjármála heimilisins. Á fyrrgreindum fundum var ákveðið að best væri að Félagsþjónusta Fjallabyggðar tæki að sér að vísa fólki rétta leið, þyrfti það á aðstoð að halda. Hægt er að panta tíma hjá starfsfólki félagsþjónustunnar í síma 464-9100 og 464-9200 frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-15:00.
Hafi fólk áhyggjur af eigin hag eða annarra er það hvatt til að nýta sér þá þjónustu sem sveitarfélagið bíður uppá. Við viljum einnig benda fólki á sérstaka upplýsingasíðu vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem félags- og tryggingamálaráðuneyti hefur sett upp. http://www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar
Við minnum einnig á að aðgát skal höfð í nærveru viðkvæmra sála í öllum umræðum um ástand þjóðmála. Börn eru sérstaklega næm fyrir tilfinningum hinna fullorðnu og nauðsynlegt að útskýra hlutina fyrir þeim með uppbyggjandi hætti frekar en svartsýni.
Við teljum sveitarfélagið og íbúa þess almennt vel í stakk búið til að takast á við þá niðursveiflu sem framundan er og með því að vera jákvæð og samtaka verður það auðveldari og styttri róður en ella. Að lokum vill bæjarstjórn hvetja fólk til að horfa jákvætt fram á veginn.
Ýmiss tækifæri liggja fyrir okkur hér í Fjallabyggð. Þar má t.d. nefna að atvinnu og ferðamálanefnd vinnur nú að því að forgangsraða verkefnum vegna starfshóps ríkisstjórnarinnar um atvinnumál Fjallbyggðar.
Auk þess sem fulltrúar sveitarfélagsins eru í viðræðum við aðila sem sjá Fjallabyggð sem hugsanlegan kost fyrir netþjónabú.
Með von um góða helgi
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Facebook
Nýjustu færslur
- 28.1.2011 Börnin borga,,,
- 14.1.2011 Niðurrif
- 31.12.2010 Innantóm loforð
- 11.11.2010 Þjóðar atkvæðagreiðslu
- 3.11.2010 Leiðtoginn,,,
Tenglar
Bloggvinir
Áhugaverðar heimasíður
- Framsóknarfélögin í Fjallabyggð
- Stjórnsýsluráðgjöf Sigurður Tómas
- Hrönn Einarsdóttir flottar myndir
- Sveinn Þorsteinsson myndir
- Þjóðlagasetur Sr Bjarna Þorsteinssonar
- Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
- Gistihúsið Hvanneyri
- Ferðaþjónusta Siglufjarðar
- Leó Óla
- Siv Friðleifsdóttir
- Vélhjólafélag Smaladrengja
- Samband íslenskra sveitafélaga
- Norðurland
- Skíðafélag Siglfirðinga Skíðaborg
- Háskólin á Hólum
- Lífið á Sigló
- Framsókn
- Fjallabyggð
- Þórarinn Hannesson Trúbador og ljóðskáld
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Heiðar Lind Hansson
- Ketilás
- Sigurður Árnason
- Vefritid
- maddaman
- Einar Björn Bjarnason
- FUF í Reykjavík
- Gestur Guðjónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Rauða Ljónið
- Samband ungra framsóknarmanna
- Sigurjón Norberg Kjærnested
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.