2.3.2008 | 10:11
Boccia mót Snerpu og sigurvegarinn níræður unglingur
Í gær fór fram hið árlega þorramót Snerpu í boccia og að venju þá er skorað á bæjarstjórn. Við tókum að sjálfsögðu áskorunni og mættu fulltrúar sveitarfélagsins vígreifir kl 10 í gærmorgun vel græjaðir í íþróttaskóm og allt sumir meira að segja í stuttbuxum því nú átti svo sannarlega að taka á því en í fyrra vorum við hreinlega tekin í kennslustund.
Og til að gera langa sögu stutta þá varð engin breyting á þrátt fyrir ágætis útbúnað og sumir höfðu meira að segja sýnt framför frá því í fyrra. Snerpu fólk rúllaði okkur upp og ég verð að segja að margt af þeirra fólki sýndi alveg magnaða takta svo ekki sé meira sagt enda íslandsmeistarar í þeirra röðum. En sigurvegar mótsins er án efa sómakonan og snillingurinn Hrefna Hermannsdóttir en hún verður níræð á þessu ári. Þvílíkt keppnisskap og taktar sem þessi lífsglaða kona sýnir, ætti að vera okkur öllum til fyrirmyndar ég verð að segja það að ég ætla svo sannarlega að vona að ég geti keppt í boccia þegar ég verð fullorðinn og geri þá helst eins og Hrefna vinni mótið.
Hún og Íris Eva voru svo sannarlega vel að sigrinum komnar, þeir sem þekkja mig vita að það er "smá " keppnisskap í kallinum og verð ég að segja að það var ekkert sérstakt að láta rúlla sér upp þarna í gær. Skotið var á krísufundi hjá fulltrúum bæjarstjórnar og ákveðið var að leita samninga við þjálfara og á þessu stigi málsins er ekki hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.
Ég ætla svo sannarlega að vona að þær viðræður beri árangur. Að móti loknu var svo komið saman og borðaður þorramatur og fleira góðgæti og síðan verðlaunaafhending og svo dansað undir fögrum tónum stórsveitar Sigurjóns Steinssonar hljómsveitarstjóra og allir skemmtu sér vel og mislengi.
Takk fyrir skemmtilegt mót Snerpufélagar og sjáumst að ári og þá verður bæjarstjórnin vonandi búin að æfa undir stjórn nýs þjálfara.
á myndinni sjást þeir sem urðu í þremur efstu sætunum og Hrefna Hermannsdóttir með bikarinn góða. Fleiri myndir eru inná www.sksiglo.is
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 28.1.2011 Börnin borga,,,
- 14.1.2011 Niðurrif
- 31.12.2010 Innantóm loforð
- 11.11.2010 Þjóðar atkvæðagreiðslu
- 3.11.2010 Leiðtoginn,,,
Tenglar
Bloggvinir
Áhugaverðar heimasíður
- Framsóknarfélögin í Fjallabyggð
- Stjórnsýsluráðgjöf Sigurður Tómas
- Hrönn Einarsdóttir flottar myndir
- Sveinn Þorsteinsson myndir
- Þjóðlagasetur Sr Bjarna Þorsteinssonar
- Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
- Gistihúsið Hvanneyri
- Ferðaþjónusta Siglufjarðar
- Leó Óla
- Siv Friðleifsdóttir
- Vélhjólafélag Smaladrengja
- Samband íslenskra sveitafélaga
- Norðurland
- Skíðafélag Siglfirðinga Skíðaborg
- Háskólin á Hólum
- Lífið á Sigló
- Framsókn
- Fjallabyggð
- Þórarinn Hannesson Trúbador og ljóðskáld
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Heiðar Lind Hansson
- Ketilás
- Sigurður Árnason
- Vefritid
- maddaman
- Einar Björn Bjarnason
- FUF í Reykjavík
- Gestur Guðjónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Rauða Ljónið
- Samband ungra framsóknarmanna
- Sigurjón Norberg Kjærnested
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.