Leita í fréttum mbl.is

Bestur í heimi

Ég rakst á þessa grein í Analys Norden og er hún eftir Ragnhildi Sverrisdóttir blaðamann, Ragnhildur er með svolítið svartan húmor og það er húmor sem mér líkar vægast sagt afar vel.

Ég er svo hjartanlega sammála henni þar sem hún veltir fyrir sér þeirri stöðu sem uppi er í samfélaginu. Og að tengja þetta við einu skemmtilegustu "léttöl" auglýsingu er alveg snilld.

Hérna er linkur á grein Ragnhildar Sverrisdóttur

 

Í sjónvarpsauglýsingum fyrir íslenskan bjór sitja tveir íslenskir náungar við barborð og monta sig við erlendan ferðamann. Þeir hafa af nógu að taka. Hér á landi eru sterkustu karlar heims og fegurstu konurnar, við vorum fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Litháen og við lögðum Breta að velli í Þorskastríðinu svokallaða þegar við færðum landhelgina út.

Auglýsingarnar eru mjög fyndnar, af því að þær ná að fanga vandræðalegasta einkenni smáþjóðarinnar: Þörfina til að upphefja sig í samfélagi hinna stærri og voldugri.

Kannski hefði átt að svíða undan þessum auglýsingum, en Íslendingar höfðu bara gaman af þeim, hölluðu sér aftur í sófanum, skelltu upp úr og hugsuðu sjálfsagt flestir með sér að þetta væri nú aldeilis rétt. Ísland væri best í heimi. Eða var ekki bullandi velmegun á landinu? Og voru íslensku  bankarnir ekki að kaupa upp alla þessa útlendu banka? Íslensk fyrirtæki að kaupa upp fasteignir og verslunarfyrirtæki víða um heim? Áttum við ekki flugfélög um víðan völl, jafnvel í sjálfri Ameríku? Meira að segja stórverslunin Magasin í Danmörku er nú í eigu Íslendinga og landinn á líka Hotel D’Angleterre. Og allir vissu að framtíðin lá í jarðvarma og þar voru Íslendingar fremstir í flokki.

Satt best að segja hafa Íslendingar verið alsælir með stöðu sína í hópi hinna stóru og voldugu undanfarin ár. Sameinuðu þjóðirnar lásu líka í lífskjör okkar og sögðu hvergi betra að búa. Við höfðum loks fengið staðfestingu á yfirburðum okkar og gátum kennt heiminum svo margt. Við ætluðum meira að segja –og ætlum okkur reyndar enn- að gera okkur gildandi með því að fá sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Það er enginn kotungsbragur á því.

Nú er ljóst að ekki verður litið til okkar sem fyrirmyndar í fjármálum á næstunni. Útrásin var fjármögnuð með ódýru, erlendu lánsfé, sem nú er horfið eins og dögg fyrir sólu. Krónan hrundi niður úr öllu valdi á örfáum vikum og Seðlabanki Íslands reynir að klóra í bakkann með hæstu stýrivöxtum á byggðu bóli. Þeir eru 15% og enn er krónan skjálfandi smámynt innan um dollara og evrur heimsins. Vörur hækka dag frá degi og því er spáð að matvælaverð, sem nú er það hæsta á Norðurlöndunum, muni hækka um allt að 20% á næstunni.

Bjórauglýsingarnar eru ekki lengur sýndar í íslensku sjónvarpi og vafasamt að svartsýn þjóðin myndi hafa húmor fyrir þeim núna.

 

Hvað gerum við nú?
Þjóðinni var skyndilega kippt niður á jörðina, eftir góðærisfyllerí síðustu ára. Fólk ærðist af ofurtrú á einum minnsta gjaldmiðli heims og tók lán í erlendri mynt til að kaupa hús og bíla. Þau lán eru núna að sliga fólk og margir sjá fram á að missa húsnæði sitt, verða að selja með bullandi tapi á fasteignamarkaði, þar sem verðið fer sífellt lækkandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 94494

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband