Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Ríkisstjórnin féll á Borginni

Eitthvað á þessa leið gæti orðið fyrirsögn fjölmiðla í dag, eða hvað? Þeir sem mótmæla núna fyrir utan Hótel Borg óska þess svo sannarleg að ég tel, en líkurnar á að þessi ríkisstjórn sé að falla frá og það vegna nokkurra mótmælenda eru að ég tel hverfandi.

Ég spyr hvers vegna er fólk með klúta fyrir andliti, ætli það sé svo pabbi og mamma sem styðja kannski ríkisstjórnina verði ekki reið og finnst sér misboðið.

Ég er fylgjandi því að kosið verði næsta vor en fram að þeim tíma á mikið eftir að breytast bæði í pólitík og efnahags málum þjóðarinnar.

Ég óska ykkur lesendur allir gleðilegs árs og friðar á komandi ári, mokum okkur saman í gegnum þá skafla sem fyrirsjáanlegir eru árið 2009.


mbl.is Hafa ruðst inn á Hótel Borg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðalánasjóður bjargvættur alls

Þetta kemur mér verulega á óvart, Íbúðalánasjóður á að bjarga atvinnulífinu.

Hvernig væri ástandið ef Framsóknarflokkurinn hefði ekki varið Íbúðalánasjóð með kjafti og klóm fyrir núverandi gjaldþrota einkavæðingarstefnu íhaldsins?

 


mbl.is Íbúðalánasjóður til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólin koma

Kæru lesendur ég vil óska þér og þínum mína bestu ósk um gleðileg jól og farsældar á nýju ári.

Öll erum við meðvituð um að komandi ár verður mörgum mjög erfitt og þá skulum við muna að það þarf oft ekki mikið til að rétta systrum okkar og bræðrum hjálparhönd.

Hlúum vel að þeim sem minna mega sín og verum góð hvert við annað, öll þurfum við jú á stuðning einhvern tímann á lífsleiðinni. Gott er að geta veitt öðrum stuðning þegar maður hefur tækifæri til.


Nýtt landslag

Eftirfarandi grein birtist í Bæjarblaðinu blaði okkar framsóknarfólks í Fjallabyggð.

Set hana hérna fyrir þau ykkur sem áhuga hafa á málefnum okkar í Fjallabyggð þar sem blaðið er eingöngu borið út í Ólafsfirði og Siglufirði.

Nýtt landslag.  

Lesandi góður.

Ég vil óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Árið sem nú er að enda hefur verið mikið framkvæmdaár hjá sveitarfélaginu Fjallabyggð og bera báðir byggðakjarnar þess augljós merki. Það er margt gott sem hefur verið gert en eins og alltaf er hægt að gera betur og á það jafnt við um okkur sem förum með stjórnun Fjallabyggðar og aðra sem hér búa og starfa.

 

Öll verðum við vör við breytt landslag í samfélaginu já og í öllum heiminum. Það hafa margir haft á orði að við í sveitarfélaginu Fjallabyggð höfum verið í “kreppu” undanfarin tíu til fimmtán ár” það má kannski segja sem svo.

 

Af hverju segi ég þetta jú hér hefur ekki verið þensla og uppbygging eins og hefur verið á suðvesturhorni landsins og fyrir austan. Hér hefur störfum fækkað mjög mikið undanfarin ár og fólksfækkun sömuleiðis, þetta er þróun sem ekki hefur gengið að snúa við því miður. En margt hefur verið reynt og hefur verið sótt á ríkið að koma með störf sem svo sannarlega eiga heima hérna t.d. fjölgun starfa hjá Síldarminjasafni Íslands svo dæmi sé nefnt. En því miður hefur verið talað fyrir daufum eyrum ráðmanna.

 

Hvað er hægt að gera til að snúa vörn í sókn? Ég hef heyrt  það nokkuð oft að sveitarfélagið Fjallabyggð sé ekki að gera neitt til að snúa þessari þróun við. Þá spyr maður sig á sveitarfélagið að fara útí fyrirtækja rekstur svarið er alveg ljóst í mínum huga það er NEI?

 

Hversvegna ætti sveitarfélagið Fjallabyggð að fara að stofna fyrirtæki?  Það hefur nóg með að veita þá grunnþjónustu sem  því ber skylda til, en í dag erum um 150- 170 stöðugildi hjá sveitarfélaginu.

 

Sveitarfélagið Fjallabyggð fór af stað með kynningu “Fjallabyggð er frumkvöðull”  með því var verið að vekja athygli fólks á því sem sveitarfélagið Fjallabyggð hefur uppá að bjóða.Sendur var magnpóstur á ungt fjölskyldufólk á suðvestur horni landsins.

 

Þetta fólk horfir nú til upprunans og spyr hvort ekki sé möguleiki að koma “heim”?

Eins og ég segi hérna framar þá hefur störfum fækkað mjög mikið á undanförnum árum og lítið komið í staðinn. Ég hef spurt þetta unga fólk hvort það gæti ekki hugsað sér að koma með hugmynd eða fyrirtæki með sér? Jú það er nefnilega svo að nokkrir aðilar hafa og eru að hugsa um það, þetta er það sem okkur vantar í okkar samfélag ungt og framtaksamt fólk fullt af eldmóði og krafti.

 

Það skal þá ekki standa á þeim sem þetta skrifar að styðja þá sem sýna vilja og áræðni til að skapa hérna eitthvað nýtt og uppbyggilegt fyrir samfélagið.

   

.

Nýtt landalag hefur skapast í samfélaginu já og á landinu öllu þetta eru mjög erfiðir tímar og eiga margir um sárt að binda. Við sem hér búum verðum að þjappa okkur enn frekar saman og moka okkur í gegnum þennan skafl, við íbúar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar höfum í gegnum árin mokað okkur út úr stórum sköflum áður. En með samstilltu átaki okkar allra sama hvaða pólitískar skoðanir við höfum þá tekst okkur þetta þess er ég full viss.

 

Nú erum við bæjarfulltrúar allir sem einn að vinna að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2009 og fyrri umræða fór fram í Ólafsfirði 9 desember jólafundur  bæjarstjórnar.

 

Það voru ekki fallegar tölur en við skulum hafa í huga að ekki er gert ráð fyrir aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði einfaldlega vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram fjárlögin svo þarna er stór óvissuþáttur.

 

Í stuttu máli þá lítur þetta svona út við fyrri umræðu.

Skatttekjur                               1.076.445.000

Félagsþjónusta                             -88.461.000

Fræðslu og uppeldismál            -499.007.000

Æskulýðs og íþróttamál              -175.294.000

Sameiginlegur kostnaður            -165.469.000

Hafnarsjóður                               -36.085.000

Íbúðasjóður                                 -18.564.000

Veitustofnun                                -50.828.000

 

Loka niðurstaða er sem sagt sú að fjárhagsáætlun til fyrri umræðu er með niðurstöðu tölur uppá -95.458.000 .

 

En eins og áður segir þá á þetta eftir að taka töluverðum breytingu og þá til hins betra, við megum ekki fyllast örvæntingu. En við sem kosin vorum til þess að fara með stjórn sveitarfélagsins verðum að gæta okkar og hlúa sem best að þeim sem minnst mega sín og láta grunnþjónustuna hafa algeran forgang.

 

Það sést á þeim tölum sem hér eru að nánast helmingur tekna sveitafélagsins fer í rekstur fræðslu og uppeldismála og svo koma íþrótta og æskulýðsmál. Þetta tvennt stendur uppúr í fjárhagsáætlun okkar og hefur reyndar gert undanfarin ár.

 

Ég ætla að enda þessi skrif mín á ljóði eftir góðan dreng sem við mörg könnumst við en hann hét Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi e hann lést  27. mars síðastliðinn eftir mikla og erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm.

 

Það kom út ljóðabók eftir hann nokkrum dögum eftir andlát hans og nefnist hún Agnarsmá brot.....

    Hugarhiminn 

Hugur þinn

Er sem himinn

Ýmist heiður og blár

Eða hrannaður skýjum

 

Hver hugsun er ský.

Sum eru sólbjört og létt

Önnur svargrá og þung.

En skýjafar allt

Er á þínu valdi.

 

Þú getur eytt öllum

Illviðrisskýjum

Svo heiðríkt verði

Á hugarhimni þínum.

 

Og þá skín sól

Ekki aðeins á þig

Heldur alla

Í návist þinni.

 

Minnstu þess ávallt

Að þú einn

Ert þinn veðurguð.

 

Hermann Einarsson Oddviti B-lista í Fjallabyggð

 


Þá er jólagjöfin klár

Hvort ætli sé meiri eftirspurn eftir svefnlyfjum eða stinningarlyfjum?

Skilaboðin skýr minni svefn meira kynlíf, í sambandi við þennan þá datt mér í hug brandari.

Strákur kemur í heimsókn til aldraðs afa síns og þar sem hann situr hjá þeim gamla kemur hjúkkan með lyfjaskammt fyrir gamla. Tvær dýrar svefntöflur og eina Viagra ódýrt stinningarlyf. Strákur er hissa og spyr hjúkkuna hversvegna tvær svefntöflur og eina Viagra. Jú svefntöflurnar svo afi þinn sofi betur og Viagra svo hann detti ekki frammúr.

Ætli Guðlaugur Þór hafi haft hönd í bagga með álagninguna, þarna er hægt að spara fólk á sjúkrahúsum gefa stinningarlyf og minnka eftirlitið...


mbl.is Svefnlyf hækka í verði – stinningarlyf lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of jólalegt, er hægt að kæra þessi ósköp?

Sá þetta blogg hjá prakkaranum og líkaði mjög vel húmorinn í þessum skrifum.... njótið vel.

 

Þetta verður að stöðva áður en eitthvað verulega krúttlegt hefst af!

Jón Steinar Ragnarsson
Jón Steinar Ragnarsson

Það er orðið svo Jólalegt hérna á Siglufirði að ég er að hugsa um að hringja á lögregluna. Þetta gengur ekki. Hér eru öll hús skreytt með glitrandi jólaljósum og drifhvít mjöllin svífur niður og leggst á trjágreinarnar merlandi eins og silfur í húminu. Þetta gengur bara ekki lengur. Hvar eru stjórnvöld? Hvejir eru það sem eiga að taka ábyrgð á svona nokkru? Maður er hér búandi í Jólakorti, sem hugsanlega getur verið sent til Kúalalúmpúr og hvað ætla ráðamenn að gera í því? Er stjórnleysið orðið algert í þessu landi? Ætla menn að missa Jólastemmninguna alveg úr böndum eins og allt annað?

Ég ætla að útbúa bréf til umboðsmanns Alþingis og reyna að leita réttar míns.

Hér eru nokkrar lélegar og hreyfðar myndir, sem teknar voru áðan í geðshræringunni.

Hér er torgið að drukkna í Jólasnjó og ljósadýrð.

c_documents_and_settings_jon_steinar_desktop_bloggmyndir_pc150015


Tak hatt þinn og staf og gakk út

Reynir Traustason er rúin því trausti hversu lítið eða mikið sem það var svo sem. Ef að maður í þessari stöðu segir ekki af sér hver þá?

Er Reynir efni í ráðherra situr og situr, verða næstu mótmæli við DV húsið grímuklædd ungmenni að grýta eggjum í húsið og gera hróp að starfsfólki og ritstjóra, eða verður þar staðsett kona sem stendur og prjónar Reynir í burtu?

 


mbl.is Reynir biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhaldsskólinn í Ólafsfirði ÞKG stendur við orð sín.

Flott frétt á visir.is Orð í tíma töluð, nú er bara að halda áfram að hola steininn.

Fréttablaðið, 16. des. 2008 05:45

Minna fé í skóla og rannsóknir

Menntamálaráðuneytið á að hagræða um þrjú prósent, eða sem nemur þremur milljörðum króna, samkvæmt sparnaðaraðgerðum ríkisstjórnarinnar. Rannsóknaframlagi upp á 800-900 milljónir er frestað og gerð þriggja prósenta hagræðingarkrafna á háskóla og framhaldsskóla. Hún á að skila samtals 900 milljónum króna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að sparnaðaraðgerðirnar reyni á þanþol skólakerfisins. „Allir gera sér grein fyrir að þetta er áhlaup og verður erfitt alls staðar. Í kreppu er ekkert undanskilið en við reynum að láta þetta verða sársaukaminna fyrir velferðarkerfið og menntakerfið," segir hún.

Háskólar landsins verða með sama rannsóknarfjármagn á næsta ári og á þessu ári því nýjum framlögum er frestað. „Við þurfum að þjappa í skólana. Við þurfum að halda skólunum opnum en nú þurfa þeir að sýna fram á að þeir geti þjappað og breytt í sínum rekstri," segir hún.
Þorgerður Katrín segir að haldið verði áfram með nýja skóla, til dæmis í Mosfellsbænum og við utanverðan Eyjafjörð.

Lánasjóður íslenskra námsmanna, LÍN, stendur vel. Hann á að spara milljarð. Þorgerður Katrín vonast til að geta nýtt eigið fé sjóðsins. „Það er eins skiptis aðgerð og því er spurning hvort við blöndum vaxtahækkun saman við en hún skilar sér ekki fyrr en eftir átta til tíu ár. Við þurfum að koma með tillögur sem leysa vandann á næstu tveimur árum." - ghs


Gott í skóinn


  
Dear Santa, 
Please send me a baby brother. Love, Billy
untitled santa




Dear Billy,
  "Send me your mother." Love, Santa

 

 

Mótmæli að mínu skapi

Ég segi nú ekki annað en það að svona á að gera hlutina, enda kona sem hefur lifað tímanna tvenna.

Hún fær ekki minni athygli en þeir klaufar sem ráðast inná lögreglustöð og aðrar byggingar.

Áfram með málefnaleg mótmæli elskum friðinn og kyssum á ???????


mbl.is Mótmælir og stagar í sokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband