Leita í fréttum mbl.is

Áfram er grínast í lýðnum nú eru það 160 milljónir og umsóknir já já 1,8 milljarðar

Þar sem ég er svo glaðvaknaður og morgun ferskur eftir góðan fund hjá SSNV í Skagafirði í gær þá finn ég mig knúinn til að halda áfram með umfjöllun um mótvægisaðgerðir tengdri ferðaþjónustu.

Segja má að grínið haldi áfram, það er deginum ljósara að mun fleiri eru að snudda í ferðaþjónustu heldur en ráðamenn hafa gert sér grein fyrir eða hvað?

Hvar finna Össur og comapní co að 160 milljónir hafi eitthvað að segja með mótvægis aðgerðir í ferðaþjónustu, því eins og mjög margir vita þá sjá þeir staðir (þar sem fiskurinn er meira að segja líka farinn suður) einna helst framtíð í ferðaþjónustu margskonar. 

En það er nefnilega svo skrýtið með ferðaþjónustuna að hún er margbreytileg og orðin með stærri iðngreinum á klakanum kalda.

Þetta þurfa ráðamenn að fara að uppgvöta, í mínum augum eru 160 milljónir bara dropi í hafið eins og sést best á upphæð umsókna ekki nema  1,8 milljarðar. HALLÓ HALLÓ

 Tekið af vef byggðastofnunar 

Mótvægisaðgerðir á sviði ferðaþjónustu

Yfir 300 umóknir bárust um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu

Í janúar síðast liðnum var auglýst eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á þeim svæðum sem orðið hafa fyrir samdrætti vegna skerðingar á aflaheimildum, en ríkisstjórnin ákvað að verja til þessara verkefna alls 160 mkr.  Umsóknarfrestur rann út þann 5. febrúar síðast liðinn.  Alls bárust 302 umsóknir að fjárhæð samtals um 1,8 milljarðar kr, þannig að ljóst er að áhuginn er gríðarlega mikill.  Byggðastofnun vinnur nú að úrvinnslu umsóknanna, en sérstaklega er litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum, og hversu hratt þau geta orðið til.  Iðnaðarráðherra mun síðan taka ákvörðun um afgreiðslu umsóknanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 94490

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband