Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
26.4.2009 | 23:19
Viku gamall draumur
Nú dreymdi mig að ég og Jóhanna Sigurðar forsætisráðherra vorum að þjarka um 20% leiðréttinga tillögu Framsóknarflokksins.
Jóhann var stödd inni á skrifstofu framkvæmdastjóra þessa fyrirtækis sem fór í þrot og hún sat einnig í hans stól, við áttum orðaskipti og fannst mér hún vera alveg eins og fyrrverandi framkvæmdastjóri þ.e.a.s. í allri framkomu. það urðu skoðanaskipti og raddir hækkuðu aðeins.
Og andrúmsloftið var það sama og þegar ég og fyrrnefndur forstjóri áttum samskipti undir starfslok fyrirtækisins.Ég veit ekki hvort það skiptir máli en forstjóri þessi fór illa með mig og dætur mínar sem tókum að okkur að þrifa í fyrirtækinu á sunnudögum.
Þetta voru tekjur okkar til að komast saman í frí erlendis. Við áttum þarna inni dágóða upphæð sem við fengum ekki greidda, ég óskaði eftir að fá að taka þessa skuld út í vörum en var hafnað.
Nú endar draumurinn á þá leið að við náðum ekki niðurstöðu og sat ég ennþá fyrir framan Jóhönnu og ekkert meira gerst við ennþá ósammála. Við þetta vakna ég.
Mér er þessi draumur ofarlega í huga núna eftir að kosningaúrslit liggja fyrir.
Gaman væri að fá álit ykkar sem teljið ykkur geta ráðið drauminn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2009 | 08:50
Lausnir fyrir okkur öll
Vissir þú að... |
... 68 ára munur er á yngsta og elsta frambjóðanda framsóknarmanna fyrir kosningarnar í vor.
|
24.4.2009 | 17:39
Hjól atvinnulífsins rúlla úr landi,,,,
Ef þetta er ekki áhyggjuefni þá veit ég ekki hvað, ég velti líka fyrir mér hvort að við sem þjóð höfum efni á því að vera með fordóma gagnvart ákveðnum atvinnugreinum.
Ég vil að allir möguleikar á atvinnu verði skoðaðir og að sjálfsögðu verðum við að gæta varúðar gagnvart náttúrunni.
tekið af vef pressan.is
Fyrrverandi formaður Viðskiptaráðs: Mörg íslensk fyrirtæki á leið úr landi
Þetta segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Primera í samtali við RÚV. Hann segir gjaldeyrishöft, kröfu um fyrirgreiðslu og vantraust í garð Íslendinga gera mörgum fyrirtækjum óbærilegt að starfa hér á landi. Íslensk fyrirtæki njóti lítils trausts. Primera Air vinni mest á erlendum mörkuðum og fyrirtækið
Jón Karl, sem áður var formaður Viðskiptaráðs Íslands, segir útlendinga gera þá kröfu að Íslendingar greiði allt fyrir fram og traustið sé lítið sem ekkert. Hvergi sé hægt að fá lánafyrirgreiðslu og liggi við að borga þurfi fyrir vélar áður en flogið sé af stað, því menn treysti því ekki lengur að lána peninga til fyrirtækja og hafi illan bifur á íslenskum fyrirtækjum.
Hann segir fleiri stór íslensk fyrirtæki íhuga að flýja land og koma sér í stærra skjól.
23.4.2009 | 22:42
Hey Hanna jó Hanna
Getur verið að stjórnarflokkarnir þori ekki að birta skýrsluna? það hefur heyrst að nú þegar liggi fyrir tillögur frá forsætisráðherra að stórkostlegur niðurskurður sé yfirvofandi í ríkisrekstrinum og fara á í hann strax að kosningum loknum.
Af hverju kemur greiðslan ekki frá AGS?
Það þarf að skera (hagræða) í ríkisrekstrinum um 180 MILLJARÐA hvernig verður það gert?
Sigmundur Davíð spáir öðru hruni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.4.2009 | 13:39
Er Ásta Ragnheiður að kaupa sig þarna inn á þing?
Tæpum milljarði úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.4.2009 | 12:58
Með og á móti
Þetta útspil Kolbrúnar Harðardóttur er ég ekki að skilja, svo kom stuttu seinna yfirlýsing frá flokknum hennar þar sem hún var endanlega "jörðuð".
Öllum er okkur í fersku mynni aðgerðaleysi fyrri ríkisstjórnar sem var með mikinn meirihluta á þingi, en mjög ólíkar skoðanir á mörgum málum.
Öll munum við líka eftir því hvað mikill tími fór í að sætta ólík sjónarmið og á meðan var klakinn að bráðna, fyrirtæki heimili og þjóðin öll í upplausn.
Ég hef af því áhyggjur ef VG og S mynda hérna ríkisstjórn þá fari alltof mikil orka í að sætta sjónarmið og semja um mikilvæg mál sem þola enga bið.
Áhyggjur þessar hef ég að fenginni reynslu.
tekið af vef visir.is
Minnir að mörgu leiti á fyrri ríkisstjórn þar sem Samfylkingin var við stýrið.
Vinstri grænir segjast ekki vera á móti olíuleit á Drekasvæðinu þrátt fyrir að umhverfisráðherra flokksins hafi lýst því yfir í gær. Iðnaðarráðherra segir engan ágreining í ríkisstjórninni varðandi olíuvinnslu.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær spurðum við Kolbrúnu Halldórsdóttur, umhverfisráðherra, út í fyrirhugaða olíuleit á drekasvæðinu. Svör ráðherrans voru afdráttalaus. Olíuvinnsla er í andstöðu við hugmyndafræði vinstri grænna um sjálfbæra þróun, sjálfbæra orkustefnu og sjálfbæra atvinnustefnu.
Við þurfum á öllum okkar mannauði að halda til þess að tryggja að við náum að standa upp aftur og reisa okkur við á nýjan leik. Þá er það ekki í mínum huga að fyrstu ákvarðanir séu svona stórar og groddalegar eins olíuvinnsla á Drekasvæðinu óneitanlega er."
Klukkutíma eftir að þessi ummæli fóru í loftið var komin yfirlýsing frá vinstri grænum. Þar segir að Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggist ekki gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Flokkurinn setji fyrirvara um umhverfisáhrif og mengunarvarnir við mögulega olíuleit og olíuvinnslu eins og í öllum öðrum málum, en þingmenn flokksins styðji hugmyndir um þjónustumiðstöð fyrir olíuleit á norðanverðum Austfjörðum.
Skömmu síðar barst einnig yfirlýsing frá Kolbrúnu þar sem hún dró heldur í land. Í yfirlýsingu hennar er það áréttað að þingflokkur Vinstrin grænna hafi ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu. Efasemdir hennar um málið sé aðallega tilkomnar vegna þess hve illa að því var staðið inn á þingi. Málið hafi verið illa kynnt og mikilvægir aðilar hafi ekki hafðir með í ráðum.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sagði í umræðuþætti á Stöð 2 í gær að ágreiningur um olíuleit hafi ekki komið upp í ríkisstjórninni.
Út af fréttinni með Kolbrúnu Halldórsdóttur höfum við í kreppunni verið að bjóða út fyrstu leyfin á Drekasvæðinu. Ég held að sú ágæta kona hafi ekki skilið málið rétt," sagði
Þá sagði Össur að ekki hafi verið neinn ágreiningur um olíuvinnslu í ríkisstjórninni.
11.4.2009 | 10:29
Tíminn kominn út
Ég fagna þessu framtaki og las ég Tímann með morgunkaffinu í morgun, áhugavert að lesa það sem Steingrímur Hermannsson skrifar og margt fleira. Slóðin er hérna http://www.framsokn.is/files/Timinn1.pdf
|
Dagblaðið Tíminn var um áratugaskeið gefinn út af Framsóknarflokknum og verður nú gefinn út nokkrum sinnum í aðdraganda kosninga. Fyrsta blaðinu verður dreift með Fréttablaðinu í dag og með pósti til þeirra sem ekki fá Fréttablaðið reglulega. Blaðið verður einnig aðgengilegt hér á heimasíðu flokksins. |
9.4.2009 | 09:49
Loka sprenging í Héðinsfjarðargöngum í dag,,,
Héðinsfjarðargöng loka sprenging.
Nú, þann 9. Apríl, verður hátíð í Fjallabyggð vegna loka sprengingar Héðinsfjarðarganga. Þá verður haldið upp á þann áfanga að náðst hefur að sprengja göng í gegn milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar, 6,9 km leið. Búið er að sprengja göng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar 3,7 km og var því verki lokið 3 apríl 2008.Verkið er unnið af Háfelli og tékkneska verktakafyrirtækinu Metrostav. Tugir tékka frá Metrostav hafa unnið við göngin og hafa þeir verið afar vinnusamir og þægilegir á allan máta. Á sínum tíma voru samgöngur til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar torsóttar. Úrbót varð árið 1967 þegar Strákagöng voru opnuð til Siglufjarðar og árið 1990 Þegar göng um Ólafsfjarðarmúla voru tekin í notkun. Nú sér fyrir endann á tengingu þessara tveggja byggðakjarna þegar Héðinsfjarðargöng klárast um mitt ár 2010. Frá þeim tíma munu íbúar Fjallabyggðar ekki þurfa að reiða sig á Lágheiðina sem á það til að vera ófær eða torsótt stórann hluta vetrar.
Mikilvæg samgöngubót.
Nýju Héðinsfjarðargöngin munu hafa afgerandi jákvæð áhrif á samfélagið í Fjallabyggð og voru í reynd forsenda þess að þessi fyrrum sveitarfélög á svæðinu sameinuðust í eitt Fjallabyggð. Sú sameining hefur gengið vel fyrir sig en mun ekki nýtast að fullu fyrr en göngin opna. Jarðgöngin munu einnig efla þéttbýliskjarnana við Eyjafjörð sem eitt atvinnusvæði, hafa jákvæð áhrif uppbyggingu framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, en tillögu um slíkan skóla flutti Birkir J. Jónsson, alþingismaður,en eitt af fyrstu verkum núverandi menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur var að skrifa undir samning um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð með höfuðstöðvar í Ólafsfirði. Reikna má með að framkvæmdir við uppbyggingu skólans geti hafist nú í vor. Að auki munu göngin hafa mjög góð áhrif á ferðaþjónustuna á Norðurlandi öllu. Nú þegar hefur verið unnið að undirbúa samstarf heilbrigðisstofnana á svæðinu og annarra slíkar þjónustu sem veitt er á Siglufirði og í Ólafsfirði. Ljóst er því að göngin skapa nýtt og langþráð sóknarfæri í byggðamálum Tröllaskagans og Eyjafjarðarsvæðisins.
Eljusamir frumherjar
Árið 1990 lagði frumherjinn Sverrir Sveinsson, Framsóknarflokki, fyrst fram þingsályktunartillögu um jarðgöng milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar í framhaldi af opnun jarðganga um Ólafsfjarðarmúla. Meðflutningsmenn Sverris að tillögunni voru Halldór Blöndal, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Ragnar Arnalds, Árni Gunnarsson og Pálmi Jónsson. Hafa þessir menn alla tíð stutt göngin af eljusemi. Þótt á engan sé hallað skal einnig nefnt að tveir menn, þeir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, áttu afgerandi þátt í að verkinu var hrundið í framgang. Samgönguráðherrar á hverjum tíma hafa einnig lagt sitt lóð á vogarskálarnar ásamt heimamönnum, nú síðast Kristján L. Möller. Það er að rætast stór draumur og er tilhlökkunin mikil að fá almennilegar samgöngubætur á milli þessara svæða og að Siglufjörður og Ólafsfjörður eru ekki lengur endastöð.
Hermann Einarsson, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2009 | 21:05
Okurkaup Súrval
því miður þá búum við íbúar Fjallabyggðar og einnig íbúar Dalvíkurbyggðar við það að hafa ekki aðra matvöruverslun en þá er kemur verst út úr þessari könnun.
Verðmunur sem er rúmar sexþúsund krónur á ekki hærri upphæð en rétt um fimmtánþúsund.
Það er nú svo að fólk fer í umvörpum til Akureyrar frá áðurnefndum byggðum til að ná í ódýra matvöru, en um leið þá kaupir fólk aðrar vörur sem er ekkert óeðlilegt en að sama skapi mjög slæmt fyrir þær verslanir í öðrum greinum en matvöru.
En það er nefnilega svo að það eru margar góðar verslanir á þessum stöðum sem bjóða góða vöru á vel samkeppnishæfu verði annað en matvara.
Með komu Héðinsfjarðaganga þá el ég mér þá ósk í brjósti að Krónan nú eða Bónus sjái sér fært að opna verslun á svæðinu við erum að fara að byggja framhaldsskóla í Fjallabyggð Ólafsfirði og það eru ekki nema 18 km frá Dalvík til Ólafsfjarðar og 15 km frá Siglufirði á þessu svæði eru rúm fjögurþúsund íbúar. Svo opnast hringur sem breytir öllum aðstæðum aukning ferðamann á bara eftir að verða osfrv.
41% verðmunur á matarkörfunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2009 | 10:15
Jákvæð frétt frá Siglufirði
Tekið af vef www.sksiglo.is
Þetta er góð frétt í ljósi þess ástands sem herjar á samfélagið í heild, ég sem viðskiptavinur Sparisjóðs Siglufjarðar frá því ég man eftir mér gleðst mikið yfir þessari frétt og tel þetta afar mikilvægt fyrir íbúa og fyrirtæki í Siglufirði að Sparisjóður Siglufjarðar er í góðum málum.
Sparisjóður Siglufjarðar í örugga höfn
Stjórn AFL sparisjóðs hefur ákveðið að nýta sér heimild í samþykktum sjóðsins til að auka stofnfé sjóðsins um 500 mkr. Ástæða þessa er að treysta eiginfjárgrunn sjóðsins á þeim erfiðu tímum sem nú herja á íslenskt efnahagslíf. Í ljósi þessa hefur stjórn sjóðsins einnig tekið ákvörðun um verulegt varúðarframlag í almennan afskriftareikning útlána.
Þá hefur sjóðurinn möguleika á að styrkja eiginfjárstöðuna enn frekar með því að óska eftir 20% eiginfjárfamlagi frá hinu opinbera.
Nú þegar hafa stærstu stofnfjáreigendur tryggt sölu á allri stofnfjáraukningunni eða 500 mkr. og hafa þegar greitt inn aukið stofnfé. Aðrir stofnfjáreigendur geta nýtt heimild sína til að auka stofnfjáreign sína í sama hlutfalli.
Ljóst er að mikilvægi sjóðsins er mjög mikið bæði í Siglufirði og Skagafirði. Með þessari aðgerð er verið að treysta verulega rekstur, samkeppnisstöðu og tryggja sjálfstæði elstu peningastofnunar landsins til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir oli@sps.is
Nýjustu færslur
- 28.1.2011 Börnin borga,,,
- 14.1.2011 Niðurrif
- 31.12.2010 Innantóm loforð
- 11.11.2010 Þjóðar atkvæðagreiðslu
- 3.11.2010 Leiðtoginn,,,
Tenglar
Bloggvinir
Áhugaverðar heimasíður
- Framsóknarfélögin í Fjallabyggð
- Stjórnsýsluráðgjöf Sigurður Tómas
- Hrönn Einarsdóttir flottar myndir
- Sveinn Þorsteinsson myndir
- Þjóðlagasetur Sr Bjarna Þorsteinssonar
- Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
- Gistihúsið Hvanneyri
- Ferðaþjónusta Siglufjarðar
- Leó Óla
- Siv Friðleifsdóttir
- Vélhjólafélag Smaladrengja
- Samband íslenskra sveitafélaga
- Norðurland
- Skíðafélag Siglfirðinga Skíðaborg
- Háskólin á Hólum
- Lífið á Sigló
- Framsókn
- Fjallabyggð
- Þórarinn Hannesson Trúbador og ljóðskáld
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Heiðar Lind Hansson
- Ketilás
- Sigurður Árnason
- Vefritid
- maddaman
- Einar Björn Bjarnason
- FUF í Reykjavík
- Gestur Guðjónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Rauða Ljónið
- Samband ungra framsóknarmanna
- Sigurjón Norberg Kjærnested