9.4.2009 | 09:49
Loka sprenging í Héðinsfjarðargöngum í dag,,,
Héðinsfjarðargöng loka sprenging.
Nú, þann 9. Apríl, verður hátíð í Fjallabyggð vegna loka sprengingar Héðinsfjarðarganga. Þá verður haldið upp á þann áfanga að náðst hefur að sprengja göng í gegn milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar, 6,9 km leið. Búið er að sprengja göng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar 3,7 km og var því verki lokið 3 apríl 2008.Verkið er unnið af Háfelli og tékkneska verktakafyrirtækinu Metrostav. Tugir tékka frá Metrostav hafa unnið við göngin og hafa þeir verið afar vinnusamir og þægilegir á allan máta. Á sínum tíma voru samgöngur til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar torsóttar. Úrbót varð árið 1967 þegar Strákagöng voru opnuð til Siglufjarðar og árið 1990 Þegar göng um Ólafsfjarðarmúla voru tekin í notkun. Nú sér fyrir endann á tengingu þessara tveggja byggðakjarna þegar Héðinsfjarðargöng klárast um mitt ár 2010. Frá þeim tíma munu íbúar Fjallabyggðar ekki þurfa að reiða sig á Lágheiðina sem á það til að vera ófær eða torsótt stórann hluta vetrar.
Mikilvæg samgöngubót.
Nýju Héðinsfjarðargöngin munu hafa afgerandi jákvæð áhrif á samfélagið í Fjallabyggð og voru í reynd forsenda þess að þessi fyrrum sveitarfélög á svæðinu sameinuðust í eitt Fjallabyggð. Sú sameining hefur gengið vel fyrir sig en mun ekki nýtast að fullu fyrr en göngin opna. Jarðgöngin munu einnig efla þéttbýliskjarnana við Eyjafjörð sem eitt atvinnusvæði, hafa jákvæð áhrif uppbyggingu framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, en tillögu um slíkan skóla flutti Birkir J. Jónsson, alþingismaður,en eitt af fyrstu verkum núverandi menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur var að skrifa undir samning um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð með höfuðstöðvar í Ólafsfirði. Reikna má með að framkvæmdir við uppbyggingu skólans geti hafist nú í vor. Að auki munu göngin hafa mjög góð áhrif á ferðaþjónustuna á Norðurlandi öllu. Nú þegar hefur verið unnið að undirbúa samstarf heilbrigðisstofnana á svæðinu og annarra slíkar þjónustu sem veitt er á Siglufirði og í Ólafsfirði. Ljóst er því að göngin skapa nýtt og langþráð sóknarfæri í byggðamálum Tröllaskagans og Eyjafjarðarsvæðisins.
Eljusamir frumherjar
Árið 1990 lagði frumherjinn Sverrir Sveinsson, Framsóknarflokki, fyrst fram þingsályktunartillögu um jarðgöng milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar í framhaldi af opnun jarðganga um Ólafsfjarðarmúla. Meðflutningsmenn Sverris að tillögunni voru Halldór Blöndal, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Ragnar Arnalds, Árni Gunnarsson og Pálmi Jónsson. Hafa þessir menn alla tíð stutt göngin af eljusemi. Þótt á engan sé hallað skal einnig nefnt að tveir menn, þeir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, áttu afgerandi þátt í að verkinu var hrundið í framgang. Samgönguráðherrar á hverjum tíma hafa einnig lagt sitt lóð á vogarskálarnar ásamt heimamönnum, nú síðast Kristján L. Möller. Það er að rætast stór draumur og er tilhlökkunin mikil að fá almennilegar samgöngubætur á milli þessara svæða og að Siglufjörður og Ólafsfjörður eru ekki lengur endastöð.
Hermann Einarsson, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:50 | Facebook
Nýjustu færslur
- 28.1.2011 Börnin borga,,,
- 14.1.2011 Niðurrif
- 31.12.2010 Innantóm loforð
- 11.11.2010 Þjóðar atkvæðagreiðslu
- 3.11.2010 Leiðtoginn,,,
Tenglar
Bloggvinir
Áhugaverðar heimasíður
- Framsóknarfélögin í Fjallabyggð
- Stjórnsýsluráðgjöf Sigurður Tómas
- Hrönn Einarsdóttir flottar myndir
- Sveinn Þorsteinsson myndir
- Þjóðlagasetur Sr Bjarna Þorsteinssonar
- Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
- Gistihúsið Hvanneyri
- Ferðaþjónusta Siglufjarðar
- Leó Óla
- Siv Friðleifsdóttir
- Vélhjólafélag Smaladrengja
- Samband íslenskra sveitafélaga
- Norðurland
- Skíðafélag Siglfirðinga Skíðaborg
- Háskólin á Hólum
- Lífið á Sigló
- Framsókn
- Fjallabyggð
- Þórarinn Hannesson Trúbador og ljóðskáld
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Heiðar Lind Hansson
- Ketilás
- Sigurður Árnason
- Vefritid
- maddaman
- Einar Björn Bjarnason
- FUF í Reykjavík
- Gestur Guðjónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Rauða Ljónið
- Samband ungra framsóknarmanna
- Sigurjón Norberg Kjærnested
Athugasemdir
Til hamingju Fjallabyggð og til hamingju Ísland
Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.4.2009 kl. 08:42
Til hamingju Fjallabyggð með göngin.
Þetta er frábært nú verður maður að hætta að hafa það sem afsökun að sé svo langt til Siglufjarðar.
Kveðja frá Egilsstöðum
Jóhanna Guðm.
Jóhanna Guðm. (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.