Leita í fréttum mbl.is

Hæ Hemmi ég ætla að vera lyklabarn.....

Ég fór í Ólafsfjörð snemma í morgun og vorum við með þeim fyrstu yfir Lágheiðina(lengsta aðalgata í þéttbýli) frétti af bílum sem komu nokkuð á eftir okkur og lenti einn utanvegar og ekkert nema vesen vegna ófærðar, sem betur fer urðu engin slys eða tjón og allir komust leiðar sinnar stuttu seinna.

Ég fór í fyrirtæki í Ólafsfirði og var að frá kl 09:00-18:00 en þá fór ég frá síðasta fyrirtækinu, þetta var mjög fróðlegt og ástandið hjá þeim sem ég heimsótti almennt mjög gott.

þarna eru menn að framleiða fiskvinnsluvélar í hæsta gæðaflokki og smíða innan í sjúkrabíla og smíða slökkvibíla svo eitthvað sé nefnt. Ég endaði svo daginn á skrifstofunni í Ólafsfirði og var þar til rúmlega 19 en þá sótti ég fólk frá Sigló sem var á fundi í umhverfis og skipulagsnefnd en honum lauk rúmlega 19

Það var þæfingur á heiðinni (lengstu aðalgötu í þéttbýli) og fórum við rólega en vorum komin heim um 21, skemmtilegt fólk í bílnum á heimleið og mörg mál rædd og mikið hlegið svona eiga ferðalög að vera.

Ég er rétt komin heim þegar ég fékk alveg æðislegt símtal frá vinkonu minni sem er nú ekki neitt smá skemmtileg og svo er hún líka fyrirsæta með sítt krullað hár og bros sem bræðir alla.

En vinkona mín er sex ára og býr í þeim skrýtna bæ Hafnarfirði, hún tjáði mér að hún væri að byrja í skóla og svo kom þessi gullna setning "Hemmi ég ætla svo að vera lyklabarn" já hún Rakel María er alveg einstök og yndisleg ætlar að koma í heimsókn í sumar til mín og gista í marga dag. Pabbi hennar átti ekki til orð þegar hann tók svo við símanum þetta með lyklabarnið var ekki alveg að falla í kramið hjá kallinum.

Svo varð hún að fá símann aftur og segir mér þá þær fréttir að mamma hennar sé með lítið barn í maganum og hún var sko stolt og spennt, síðan kom Hemmi getur þú ekki talað aðeins við hann pabba. Já pabbi hennar er jafn gamall mér og það er alveg að fara með hann að nýtt barn sé á leiðinni, Súddi minn það verður að taka afleiðingum leikfimisæfinga sinna. Við höfum sama "skíta" húmorinn og göntuðumst með það þegar barnið fermist þá segi það öllum að þetta sé afi sinn:)

Já það er gaman af þessum blessuðum börnum og þá sérstaklega henni Rakel Maríu fyrirsætu í Hagkaups bæklingum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband