Leita í fréttum mbl.is

Dampur / stampur

Þá eru stoðir þessara tveggja ríkisstjórna að bresta, ráðherra viðskipta sagði af sér. Með þessu leik sínum er hann að koma hvítþveginn til baráttu í kosningaslaginn.

Mér þykir mjög athyglisvert að strákurinn skuli gera það með þessum hætti. Að hans sögn þá tók hann þessa ákvörðun í gærkvöldi einn og óstuddur, það er bara svona ætli hann hafi verið að horfa á Spaugstofuna og búinn að fá sér einn kaldann og hugsað sem svo "þetta er búið" kosningar á næstunni og ég ætla í framboð???

Að forsvarsmenn ríkisstjórnanna tveggja komi svo nánast af fjölum(leikhússins) er alveg ótrúlegt, strákurinn stóð sig vel hann á mikla framtíð í pólitík segir Geir ja hérna hér Geir þú kemur endalaust á óvart verð ég að segja.

Dýralæknirinn er límdur við fjármálastólinn það er ekkert farasnið á honum, búið er að stilla íhaldinu upp við vegg hvað ætlar það að verja Seðlabankastjóra lengi?

Vinnubrögð þessara tveggja ríkisstjórna eru fyrir neðan allar hellur hásetar og nú síðast stýrimenn eru ekki að gefa skipstjórunum frið til að vinna í sínum veikindum nei þeir níðast á þeim sem aldrei fyrr.

Það er skítalykt í loftinu og meinlegir skuggar á ferð, fólkið er að drukkna og björgunarbátarnir eru ekki settir fyrir borð því skipstjórarnir á Klaka skútunni geta ekki gert upp sín á milli hvort setja á fyrst út á stjórnborða eða bakborða og stýrimenn stokknir fyrir borð og stór hluti háseta einnig.

Farþegarnir hafa gert uppreisn og Klaka skútan er stjórnlaus hún hoppar og skoppar á öldutoppum úthafsins og stefnir hraðbyr niður og allir með.

 


mbl.is Geir: Má ekki missa dampinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband