Leita í fréttum mbl.is

Nýtt landslag

Eftirfarandi grein birtist í Bæjarblaðinu blaði okkar framsóknarfólks í Fjallabyggð.

Set hana hérna fyrir þau ykkur sem áhuga hafa á málefnum okkar í Fjallabyggð þar sem blaðið er eingöngu borið út í Ólafsfirði og Siglufirði.

Nýtt landslag.  

Lesandi góður.

Ég vil óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Árið sem nú er að enda hefur verið mikið framkvæmdaár hjá sveitarfélaginu Fjallabyggð og bera báðir byggðakjarnar þess augljós merki. Það er margt gott sem hefur verið gert en eins og alltaf er hægt að gera betur og á það jafnt við um okkur sem förum með stjórnun Fjallabyggðar og aðra sem hér búa og starfa.

 

Öll verðum við vör við breytt landslag í samfélaginu já og í öllum heiminum. Það hafa margir haft á orði að við í sveitarfélaginu Fjallabyggð höfum verið í “kreppu” undanfarin tíu til fimmtán ár” það má kannski segja sem svo.

 

Af hverju segi ég þetta jú hér hefur ekki verið þensla og uppbygging eins og hefur verið á suðvesturhorni landsins og fyrir austan. Hér hefur störfum fækkað mjög mikið undanfarin ár og fólksfækkun sömuleiðis, þetta er þróun sem ekki hefur gengið að snúa við því miður. En margt hefur verið reynt og hefur verið sótt á ríkið að koma með störf sem svo sannarlega eiga heima hérna t.d. fjölgun starfa hjá Síldarminjasafni Íslands svo dæmi sé nefnt. En því miður hefur verið talað fyrir daufum eyrum ráðmanna.

 

Hvað er hægt að gera til að snúa vörn í sókn? Ég hef heyrt  það nokkuð oft að sveitarfélagið Fjallabyggð sé ekki að gera neitt til að snúa þessari þróun við. Þá spyr maður sig á sveitarfélagið að fara útí fyrirtækja rekstur svarið er alveg ljóst í mínum huga það er NEI?

 

Hversvegna ætti sveitarfélagið Fjallabyggð að fara að stofna fyrirtæki?  Það hefur nóg með að veita þá grunnþjónustu sem  því ber skylda til, en í dag erum um 150- 170 stöðugildi hjá sveitarfélaginu.

 

Sveitarfélagið Fjallabyggð fór af stað með kynningu “Fjallabyggð er frumkvöðull”  með því var verið að vekja athygli fólks á því sem sveitarfélagið Fjallabyggð hefur uppá að bjóða.Sendur var magnpóstur á ungt fjölskyldufólk á suðvestur horni landsins.

 

Þetta fólk horfir nú til upprunans og spyr hvort ekki sé möguleiki að koma “heim”?

Eins og ég segi hérna framar þá hefur störfum fækkað mjög mikið á undanförnum árum og lítið komið í staðinn. Ég hef spurt þetta unga fólk hvort það gæti ekki hugsað sér að koma með hugmynd eða fyrirtæki með sér? Jú það er nefnilega svo að nokkrir aðilar hafa og eru að hugsa um það, þetta er það sem okkur vantar í okkar samfélag ungt og framtaksamt fólk fullt af eldmóði og krafti.

 

Það skal þá ekki standa á þeim sem þetta skrifar að styðja þá sem sýna vilja og áræðni til að skapa hérna eitthvað nýtt og uppbyggilegt fyrir samfélagið.

   

.

Nýtt landalag hefur skapast í samfélaginu já og á landinu öllu þetta eru mjög erfiðir tímar og eiga margir um sárt að binda. Við sem hér búum verðum að þjappa okkur enn frekar saman og moka okkur í gegnum þennan skafl, við íbúar Ólafsfjarðar og Siglufjarðar höfum í gegnum árin mokað okkur út úr stórum sköflum áður. En með samstilltu átaki okkar allra sama hvaða pólitískar skoðanir við höfum þá tekst okkur þetta þess er ég full viss.

 

Nú erum við bæjarfulltrúar allir sem einn að vinna að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2009 og fyrri umræða fór fram í Ólafsfirði 9 desember jólafundur  bæjarstjórnar.

 

Það voru ekki fallegar tölur en við skulum hafa í huga að ekki er gert ráð fyrir aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði einfaldlega vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram fjárlögin svo þarna er stór óvissuþáttur.

 

Í stuttu máli þá lítur þetta svona út við fyrri umræðu.

Skatttekjur                               1.076.445.000

Félagsþjónusta                             -88.461.000

Fræðslu og uppeldismál            -499.007.000

Æskulýðs og íþróttamál              -175.294.000

Sameiginlegur kostnaður            -165.469.000

Hafnarsjóður                               -36.085.000

Íbúðasjóður                                 -18.564.000

Veitustofnun                                -50.828.000

 

Loka niðurstaða er sem sagt sú að fjárhagsáætlun til fyrri umræðu er með niðurstöðu tölur uppá -95.458.000 .

 

En eins og áður segir þá á þetta eftir að taka töluverðum breytingu og þá til hins betra, við megum ekki fyllast örvæntingu. En við sem kosin vorum til þess að fara með stjórn sveitarfélagsins verðum að gæta okkar og hlúa sem best að þeim sem minnst mega sín og láta grunnþjónustuna hafa algeran forgang.

 

Það sést á þeim tölum sem hér eru að nánast helmingur tekna sveitafélagsins fer í rekstur fræðslu og uppeldismála og svo koma íþrótta og æskulýðsmál. Þetta tvennt stendur uppúr í fjárhagsáætlun okkar og hefur reyndar gert undanfarin ár.

 

Ég ætla að enda þessi skrif mín á ljóði eftir góðan dreng sem við mörg könnumst við en hann hét Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi e hann lést  27. mars síðastliðinn eftir mikla og erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm.

 

Það kom út ljóðabók eftir hann nokkrum dögum eftir andlát hans og nefnist hún Agnarsmá brot.....

    Hugarhiminn 

Hugur þinn

Er sem himinn

Ýmist heiður og blár

Eða hrannaður skýjum

 

Hver hugsun er ský.

Sum eru sólbjört og létt

Önnur svargrá og þung.

En skýjafar allt

Er á þínu valdi.

 

Þú getur eytt öllum

Illviðrisskýjum

Svo heiðríkt verði

Á hugarhimni þínum.

 

Og þá skín sól

Ekki aðeins á þig

Heldur alla

Í návist þinni.

 

Minnstu þess ávallt

Að þú einn

Ert þinn veðurguð.

 

Hermann Einarsson Oddviti B-lista í Fjallabyggð

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband