Leita í fréttum mbl.is

Loðnubrestur og allt á leið til helvítis,,,

Það eru sorgarfréttir af blessaðri loðnunni, hún er týnd eða hvað? Það virðist ekki vera sama hver leitar þ.e.a.s. hvort það er Hafrannsóknarstofnun eða loðnuskipstjórar, mér finnst afar merkilegt að heyra frá skipstjórum sem halda því fram að það sé nóg af loðnu fyrir sunnan land og þeir hafi tilkynnt það til Hafró en þeir hafi ekki áhuga á að leita eða hreinlega hafi enga trú á þessum upplýsingum.

Það er nú svo að Siglufjörður hefur verið sá kaupstaður sem hefur farið hvað verst út úr viðskiptum við silfur hafsins, en eins og allir vita þá var fyrsta stóriðja landsins í kringum síldina á Sigló, og síðan tók loðnan við nokkuð seinna. Ég var starfsmaður hjá SR eða Síldarverksmiðjum ríkisins síðar SR mjöl og var ég kyndari en það er sá er stjórnaði eldþurrkuninni á loðnunni. Þetta er í kringum 1991 og voru þá um 30-40 manns á launum hjá SR.(Gætu hafa verið fleiri)

Nú í lok árs 1999 þá er tekið í gagnið nýtt þurrkhús gömlu eldþurrkararnir aflagðir og settir lofþurrkarar í þeirra stað endurbætur og fjárfesting upp á um 2 milljarða já 2 milljarða. En viti menn núna 9 árum síðar þá eru nýir eigendur SVN búnir að gefa það út að verksmiðjan verði aflögð og búnaður hennar verði rifin niður og seldur ef hægt verður.

það hefði þótt létt geggjaður(eða örugglega einn af englum alheimsins) sá aðili sem hefði haldið því fram árið 1999 að þessi stórkostlega og fullkomna verksmiðja yrði aflögð árið 2008.

Síðastliðin 2 ár þá hafa verið 3 starfsmenn á launaskrá hjá hinum nýju eigendum en voru 30-60 fyrir 10 til 15 árum.  

Svona er nú komið fyrir mörgum þeim stöðum sem hafa treyst eingöngu á það sem hafið hefur gefið okkur, og hver er afleiðingin jú það fækkar að sjálfsögðu á stöðunum.

Það er alveg ljóst að mótvægisaðgerðir verða að fara að virka beint til þeirra sem verst verða úti í þessum hamförum sem dynja yfir þessa daganna.

Sveitarfélögin eru mörg hver að skila tillögum til þeirra nefnda þ.e.a.s. Norðvestur og austur nefnda. Fjallabyggð er að vinna tillögur sínar og aðila atvinnulífsins til afgreiðslu til nefndar á vegum Forsætisráðuneytisins og verður þeirri vinnu lokið í enda mars.

Það eru líka mörg tækifæri hringinn í kringum landið en það sem að oft vantar er stuðningur frá ríkinu til að hrinda stórum hluta þessara framkvæmda í gagnið, en Geir og Össur hafa gefið boltann og er hann núna hjá sveitarfélögunum og verður sendur til baka og þá vonandi sem oftast í netið hjá þeim félögum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grisemor

Já einmitt en reyndar var það fyrst núna sem verksmiðjan var aflögð með formlegum hætti. Aflagningn hófst um leið og Samherjamenn (les böðlar landsbyggðarinnar) keyptu fyrirtækið með manni og mús fyrir nokkrum árum. Náðarskotið var bara að ríða af núna eftir margra ára hleðslu.

Það má helst skilja á grátkórnum sem treður upp og tekur óbeðið aukalög hér og þar um landið að Neskaupstaður, Vestmannaeyjar og fleiri staðir séu á leið í auðn vegna loðnubrests. Engu að síður er það svo að fáir ef nokkrir staðir á landsbyggðinni hafa þurft að taka aðrar eins dýfur í sjávarútvegi og veiðum og Siglufjörður. Síðast þegar ég leit út um gluggan var þó líf að sjá á götunum og nokkur uppistandandi hús.

Staðurinn hefur byggðist alfarið í kringum beinin úr sjónum og það sem var utaná þeim en nú er nánast öll vinnsla og veiðar farin annað eða horfin. Menn hafa einfaldlega fundið aðrar lausnir. Að vísu verður að segja að atvinnulífið gæti alveg þolað meiri fjölbreytni og fleiri lausnir. En það koma dagar og vonandi ráð.

Grisemor, 22.2.2008 kl. 15:57

2 Smámynd: Grisemor

Ég gleymdi reyndar að geta nafns.

 Með kveðju:

Halldór Þormar Halldórsson

Grisemor, 22.2.2008 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband