Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Trefill 11,3 km að lengd.

Þessi frétt birtist á www.siglo.is í gær og fjallar um trefil sem vaskir prjónarar hafa prjónað að undanförnu. Fjöllistakonan Fríða Gylfadóttir fékk þessa hugmynd og hrinti henni í framkvæmd með þessum flotta árangri.

Fríða Gylfadóttir var í gærkvöldi ásamt hópi af duglegu prjónafólki að taka á móti síðustu bútunum í trefilinn.

Vel hefur gengið á lokasprettinum og er trefillinn nú orðinn 11,3 km að lengd.

Það styttist nú í stóra daginn og verður trefillinn saumaður saman í Héðinsfirði við hátíðlega athöfn.

Þetta verkefni er búið að sameina fjölmargt fólk víðsvegar um landið í hlýhug til Fjallabyggðar auk þess sem fjöldi fólks beggja vegna Héðinsfjarðar hefur komið saman og átt góða stund við prjónaskapinn.

Árangur erfiðisins er nú kominn ljós og eru það rúmlega þúsund manns sem hafa lagt hönd á plóg.

Komandi helgi verður lengi í minnum höfð og laugardagurinn 2. október verður framvegis merkisdagur í sögu bæjarins.

Trefillinn er skýrt dæmi um það hversu mikilvæg þessi göng eru fyrir íbúa á svæðinu og er það einstætt afrek hjá prjónafólki að ná 11,3 kílómetrum á ekki lengri tíma.


Skíðasvæðið Skarðsdal á Siglufirði

Eftirfarandi grein er tekin af vef www.siglo.is

Ég vil fagna framtaki rekstraraðila skíðasvæðisins með það að bjóða nemendum 1. og 2. bekkjar við Grunnskóla Fjallabyggðar frítt í lyftur í vetur ég hefði reyndar kosið að þetta ætti við alla nemendur grunnskólans. Nú heyrist að skíðadeild Leifturs komi ekki til með að stunda æfingar í Skarðinu heldur eigi að æfa á Dalvík og í samstarfi við skíðafélag Dalvíkur. Hvað veldur veit ég ekki en ef þetta er rétt er þá ekki komið að því að taka niður lyftuna í Ólafsfirði og setja hana í Skarðið þar sem vantar lyftu til að tengja á milli T lyftu og bungu lyftu? Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu mála.

"Nú þegar haustið er komið kemur að því að skíðasvæðið í Skarðsdal  opnar og er stefnt  á að opna fyrstu daganna í nóvember og vera með opið til loka apríl á næsta ári.

 

Jarðvegsvinna stendur yfir á öllu svæðinu og er lokið við vinnu á Búngusvæði  þar sem lyftusporið var lagfært og grjóthreinsun og á T-svæðinu var lyftuspor lagfært en jarðvegsvinna stendur  nú yfir  á Neðstasvæðinu og í framhaldinu verður unnið við uppsetningu á  snjógirðingum og nú er vonandi að  við þurfum ekki eins mikinn snjó til að starta svæðinu.

Valló ehf sem rekur skíðasvæðið í Skarsdal á Siglufirði hefur tekið þá ákvörðun að bjóða öllum grunnskólabörnum í  1 og 2 bekk frítt í lyftur í vetur og öðrum grunnskólabörnum í Fjallabyggð Vetrarkort á kr. 3.000.- og öllum framhaldsskólakrökkum í  Menntaskóla Tröllaskaga og öðrum krökkum frá  Fjallabyggð  sem eru í framhaldsskólum Vetrarkort á kr. 5.000.-

Vetrarkort gilda frá opnun að hausti 2010 til vors 2011.

Rekstraaðili skíðasvæðisins gerir ráð fyrir því að mörg börn í Fjallabyggð  nýti sér þetta tilboð og nýti svæðið sér  til skemmtunar og yndisauka og að sjálfsögðu skíðafélögin bæði  til æfinga og keppni á komandi vetri. Verður þá gaman að sjá þegar  krakkar bæði úr austurbænum og vesturbænum koma   í  Skarðsdalinn. Til gamans má geta að skíðasvæðið í Skarðsdal var opið í 100 daga síðastliðinn vetur og gestir ríflega 10 þúsund, spennandi verður að sjá hvað Héðinsfjarðargöng gera fyrir svæðið en nú þegar hafa hópar boðað komu sína á komandi vetri."

Heimasíða svæðisins er:  skard.fjallabyggd.is


Til hamingju Ísland

það er ekki annað hægt en að samgleðjast Vestfirðingum sem og öðrum landsmönnum með þessa miklu samgöngubót sem jarðgöngin eru. Nú verður spennandi að sjá hvort að ekki verði um frekari sameiningu að ræða á milli þessara staða. Það er ekkert launungamál að mikill rígur er á milli Ísafjarðar og Bolungavíkur en vonandi verður þessi samgöngubót til að slá á svona gamaldags hrepparíg.
mbl.is „Gríðarleg ánægja sem fylgir því að keyra í gegn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biggi Run lagðist á Aðalgötuna á Sigló

þetta minnir á þegar Biggi Run lagðist á miðja Aðalgötuna og neitaði að standa upp nema Gestur Fanndal kæmi og bæði hann um það. Gestur kom og bað Bigga að standa upp sem og hann gerði og málið leyst,,,,
mbl.is Stöðvaði för strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfshópur um hagræðingu í rekstri ríkisins

Er nú ekki nóg komið í skattahækkunum? Þarf ekki að hagæða í rekstri hins opinbera og væri ekki lag að skipa starfshóp til þess að koma með tillögur að niðurskurði?
mbl.is Tillögur um hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opnun Héðinsfjarðarganga

Dagskrá 2. okt

Ágætu íbúar Fjallabyggðar.

Helgin 2 og 3. október næstkomandi verður tilkomumikil. 
Stórviðburður í sögu Fjallabyggðar verður að veruleika þar sem allir taka  þátt í að sameina tvo frábæra byggðarkjarna í eitt raunverulegt og samtengt sveitarfélag.

Íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem og gestir þeirra og Vegagerðar munu streyma í Héðinsfjörð og verða við vígslu á göngum sem tengir  Fjallabyggð saman, samgöngulega séð.

Allir eru boðsgestir þennan dag og hefur bæjarstjórn ákveðið að bjóða gestum í veglegt kaffisamsæti þar sem bæjarbúar Fjallabyggðar sameinast og drekka kaffi með sínum gestum.

Tíu rútur munu stöðugt aka um Héðinsfjörð, á milli bæjarkjarna, til að koma í veg fyrir umferðar öngþveiti í göngum og eða í Héðinsfirði. Lögð er rík áhersla á öryggi íbúa og að flestir geti komið á staðinn og verið við opnun og vígslu þessara stórkostlegu mannvirkja.

Til að tryggja aðkomu bæjarbúa að vígslunni verður komið fyrir búnaði í báðum byggðarkjörnunum þannig að  íbúar geti fylgst með þessum atburði beint í gegnum skjávarpa.

Kaffisamsætið verður í íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Í Ólafsfirði  að þessi sinni.

Undirbúningsnefnd hafði hér úr vöndu að ráða er varðar staðarval fyrir svo marga gesti en niðurstaða hennar og bæjarráðs byggir á skoðun á eftirtöldum forsendum m.a..
1. Góð aðkoma að íþróttamiðstöðinni
2. Stórt og mikið hús í eigu Fjallabyggðar
3. Þjónustufólk á einum stað
4. Kostnaður við hljóðkerfi og annan búnað tekur mið af einu húsi
5. Heildarfjármagn frá vegagerð og bæjarfélagi hafði áhrif
6. Ávörp verða flutt á einum stað
7. Skemmti og gamanmál á einum stað
8. Betri umferðarstjórnun
9. Boðsgestir á vegum Vegagerðar eru bundnir flugi og geta ekki farið á milli staða
10. Gott fordæmi - bæjarbúar Fjallabyggðar sameinist þennan gleðidag á einum stað.

Vil hér í lokin nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem hafa unnið að þessu verkefni og látið þennan dag verða að veruleika. Fjallabyggð byggir á ótrúlegri sögu og menningu. Bættar samgöngur verða til að gjörbreyta ferðaþjónustu á norðanverðum Tröllaskaga á næstu árum og saga svæðisins og menning mun nú verða öllum aðgengilegri.
Fjallabyggð verður nú í alfaraleið. Ráðherrar, fyrrum þingmenn og núverandi, bæjarfulltrúar núv
erandi og fyrrverandi eiga miklar  þakkir fyrir tvö stórvirki sem bæta munu mannlífið Í Fjallabyggð á næstu árum.

Saga Fjallabyggðar er rétt að hefjast en Héðinsfjarðargöng og  Menntaskólinn á Tröllaskaga er gott veganesti inn í framtíð sem byggir á að íbúar ákváðu að sameinast, ná því markmiði að vera vel yfir tvö þúsund  til að halda uppi og standa undir  þeirri þjónustu sem bæjarbúar kjósa hverju sinni.

Við sem íbúar skulum njóta þessa dags og helgarinnar, margt annað verður til skemmtunar og fróðleiks þessa helgi og vil ég þakka þeim fjölmörgu sem munu gera helgina eftirminnilega.
Sú dagskrá verður auglýst sérstaklega.

Hafið þakkir fyrir góðan undirbúning og viðtökur ágætu bæjarbúar – sameinuð stöndum við.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.


Vaknaður af blogg dvala

Jæja þá er spurning að taka upp á því að blogga mörum örugglega til ama. Óhætt er að segja að af mörgu er að taka í þeim fréttum og ekki fréttum sem dynja á okkur.

Satt best að segja þá hlakka ég mikið til þess að Héðinsfjarðargöng verða vígð 2.okt næstkomandi en þá fyrst verður hægt að tala um sameinað sveitarfélag. Það að þurfa að keyra 60 km á milli bæjarhluta er ótækt svo ekki sé meira sagt. Ég er því brennimerki brenndur að þurfa að hafa skoðun á flestum hlutum og finn mig knúinn til að segja og skrifa mínar skoðanir og  birta þær á þeim vettvangi sem tiltækur er eins og þessu bloggi og svo fésbókinni. Það er svo ykkar að ákveða hvort að þið lesið það sem ég hef fram að færa. Skoðanir ykkar eru svo að sjálfsögðu vel þegnar svo framalega sem að þær eru innan velsæmismarka.

Ég ætla að blogga um fréttir líðandi stundar sem mér þykir áhugaverðar einnig hef ég ákveðið að fjalla um líðandi stundir úr daglegu lífi og reyna að sjá skoplegu hliðina á því. Ég hef áður sagt að það samfélag sem ég ólst uppí og bý í núna hefur orð á sér fyrir svartan húmor það er eitthvað sem mér líkar og hef gaman af.

Mikið hefur breyst síðan ég ritaði á þessum vettvangi síðast og þá kannski sem snýr að mér persónulega þá hef ég flutt á milli bæjarhluta færði mig frá þöglu nágrönnum mínum (gamla kirkjugarðinum) við Háveg nyrst í suðurbæinn. Læt þetta nægja í bili enda komin með strengi í fingurna eftir allan þennan slátt á lyklaborðið,,,, gott í bili.


Má þá leggja samgönguráðuneytið niður??

Öll loforð samgönguráðherra hafa nú verið þurrkuð út og þá spyr maður sig hvort að ekki megi leggja þetta ráðuneyti niður eða sameina það einhverju öðru um næstu áramót?

 

Tekið af vef samgönguráðuneytis.

Vegakerfi í samræmi við þarfir

Vegamál eru umfangsmesti og fjárfrekasti málaflokkur samgönguráðuneytisins.

Leiðarljós ráðuneytisins í vegamálum eru greiðar-, öruggar-, umhverfisvænar- og hagkvæmar samgöngur.

Vegagerðin er samkvæmt vegalögum, nr. 45/1994, veghaldari þjóðvega eða sú stofnun sem hefur forræði yfir hönnun og gerð umferðarmannvirkja ásamt forræði á þjónustu og viðhaldi. Vegagerðin vinnur í samræmi við samgönguáætlun, annars vegar fjögurra ára samgönguáætlun og hins vegar 12 ára samgönguáætlun.

Hlutverk Vegagerðarinnar er þannig ,,að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu sem miðar að greiðri og öruggri umferð". Í því felst að samgöngur eru tryggðar allt árið með eins litlum tilkostnaði og eins miklum þægindum og unnt er.


mbl.is Hætt við öll útboð í vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keppendur Midnight Sun Race eru farnir að tínast til landsins

Nú er aðeins rúm vika í hina nýju alþjóðlegu siglingakeppni Midnight Sun Race á Siglufirði sem verður haldin í fyrsta skipti á Jónsmessunni þann 20. júní n.k.
Fimm skútur, erlendar og innlendar, í þremur flokkum eru skráðar til keppni. Áhafnir þeirra er misstórar en búist er við að keppendur verði á milli 20 og 30.
Keppendur verða ræstir kl: 18:00 á laugardag. Siglt verður umhverfis Grímsey og til baka til Siglufjarðar. Keppendur sigla því yfir Norðurheimsskautsbaug og fá vottorð uppá það. Áætlað er að keppendur verði komnir í mark fyrripartinn á sunnudaginn 21. júní.
Mikil undirbúningsvinna liggur að baki keppninni, sérstaklega hvað varðar kynningu erlendis. Sigmar B. Hauksson hefur unnið að skipulagningu og kynningu keppninnar erlendis og væntir hann þess að keppnin verði eftirsótt í framtíðinni enda ein sinnar tegundar á svæðinu. Keppnin hefur þegar fengið umfjöllun í erlendum siglingablöðum og von er á erlendum blaðamönnum til að fylgjast með keppninni í ár.
Stefnt er að því að keppni þessi verði árlegur viðburður sem vaxi með hverju árinu og auki ferðamannastrauminn til Fjallabyggðar. Auk þess hefur verið unnið markvist að því síðastliðin tvö ár að kynna fyrir skútueigendum aðstöðu til vetrarlegu sem er til staðar á Siglufirði og þá þekkingu og þjónustu sem er á staðnum til viðgerðar og viðhalds á skútum. Hægt er að fá nánari upplýsingar um keppnina á heimasíðu hennar, tengill HÉR
tekið af vef sksiglo.is

Áfangasigur í menntamálum við utanverðan Eyjafjörð

Þá er loks komið svar um framtíð framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð sem staðsettur verður í Ólafsfirði. Þetta hefur verið mikil þrautarganga svo ekki sé meira sagt ég hefði ekki trúað því hvað margir hafa lagt stein í götu þessa framfara verkefnis.

En nú sér loks fyrir endann á þeim ósköpum og framtíðin varðandi framhaldsmenntun á þessu svæði er björt. Það hlýtur að vera mikil búbót fyrir foreldra barna sem eru að stíga sín fyrstu skref á framhaldsskóla stigi að geta haft börnin heima það vita allir að kostnaður er mjög mikill við að senda börnin í burtu og auk þess miklar áhyggjur. Svo gerist það að margir sem áhuga hafa á því að bæta við sig menntun fá þarna kjörið tækifæri án mikils tilkostnaðar að stunda nám. Það sanna dæmin t.d. í Grundarfirði.

Tekið af vef Fjallabyggðar

Framhaldsskólanám í Fjallabyggð – fyrsta skrefið

Á sameiginlegum fundi skólanefndar og byggingarnefndar hins nýja framhaldsskóla, fyrr í dag, voru þau ánægjulegu tíðindi staðfest að fengist hefði samþykki menntamálaráðuneytis fyrir að bjóða upp á nám á framhaldsskólastigi á Siglufirði og í Ólafsfirði næsta vetur. Nemendum býðst að stunda fjarnám með stuðningi og utanumhaldi í heimabyggð.


Að sögn Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, formanns skólanefndar, verða næstu skref þau að leitað verður til skráðra nemenda eftir staðfestingu og skráningu í áfanga. Þegar skráning í áfanga liggur fyrir er unnt að fara að huga að ráðningu kennara.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hermann Einarsson
Hermann Einarsson

Áhugamaður um allt milli himins og helvítis

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband